Eining-Iðja, í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu, mun halda trúnaðarmannanámskeið, hluta 2 dagana 7. til 9. febrúar og hluta 3 dagana 28. febrúar til 2. mars nk. Kennt verður í Einingar-Iðjusalnum alla dagana frá kl. 9:00 til 16:00.
Búið er að senda bréf á þá trúnaðarmenn sem eiga eftir að sitja hluta 2 og minnum við þá á að síðasti dagur til að skrá sig á námskeiðið er í dag. Fljótlega verða send bréf á þá trúnaðarmenn sem eiga eftir að sitja hluta 3.
Athugið að Félagsmálaskóli alþýðu tók nýlega í notkun nýja námsskrá sem kallast Nám trúnaðarmanna. Áður voru þrepin 7 en nú er náminu skipt upp í fjóra hluta.
Þeir trúnaðarmenn félagsins sem vilja sækja námskeiðin eru vinsamlegast beðnir að tilkynna þátttöku sína til Aðalbjargar í síma 460 3609 eða á netfangið ein@ein.is