Tölvunámskeið fyrir byrjendur

Eining-Iðja, í samstarfi við SÍMEY og Tölvufræðsluna á Akureyri, býður félagsmönnum upp á tölvunámskeið fyrir byrjendur með áherslu á internet og tölvupóst.

  • Námskeiðið er ókeypis.
  • Hámarksfjöldi 10, reynt verður að koma á öðru námskeiði ef þarf.
  • Námskeiðið stendur yfir fimmtudagana 8., 15. og 29. nóvember og 6. desember. 
  • Kennsla fer fram í SÍMEY milli kl. 16:00 og 19:00.
  • Skráning fer fram á skrifstofu félagsins á Akureyri og í síma 460 3600.
  • Skráningu lýkur kl. 16 þriðjudaginn 6. nóvember nk.