Tölvunámskeið

Eining-Iðja, í samstarfi við SÍMEY og Tölvufræðsluna á Akureyri, býður félagsmönnum upp á tölvunámskeið fyrir þá sem hafa einhverja undirstöðu í tölvunotkun eða hafa tekið grunntölvunámskeið. Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn.

Lögð verður t.d. áhersla á ritvinnslu, uppsetningu texta og leiðréttingarforrit, Picasa myndvinnsluforrit o.fl.

Hámarksfjöldi 12, reynt verður að koma á öðru námskeiði ef þarf.

Kennsla fer fram í SÍMEY, Þórsstíg 4, milli kl. 19:30 og 21:30 dagana 2., 9., 15., 23. og 30. apríl og 7. maí

Skráning fer fram á skrifstofu félagsins á Akureyri og í síma 460 3600

Skráningu lýkur kl. 16 mánudaginn 31. mars nk.