Tökum vel á móti Gallup - færð þú vinning?

Í gær hófst viðhorfskönnun sem Gallup framkvæmir fyrir Einingu-Iðju og AFL Starfsgreinafélag um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna. Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga. Bréf voru sett í póst á þá 3.000 félagsmenn sem valdir voru handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga.  Bréfin fara út á íslensku, ensku og pólsku - allt eftir þjóðerni viðtakenda.

Hluti spurninganna í könnuninni eru hefðbundnar og tengjast stöðu á vinnumarkaði, vinnutíma, dagvinnulaunum og heildarlaunum. Eru félagsmenn hvattir til að hafa launaseðil (september)  við hendina þegar könnuninni er svarað.

Þá er spurt um viðhorf til félaganna, kröfugerð við gerð næstu kjarasamninga, starfsumhverfi, áhrif Covid á starfshlutfall, veikindi og slys, trúnaðarmenn á vinnustöðum, réttindi og brot á kjarasamingum og ýmislegt fleira sem félögin kanna meðal félagsmanna með reglubundnum hætti.

Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í könnuninni því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Starfsmenn frá Gallup eru nú að hringja í þessa félagsmenn. Bæði verður hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað.

Niðurstöður fyrri kannana má finna hér

Þátttakendur strax í happdrættispott!
20 þátttakendur lenda strax í happdrættispotti, vinningshafar fá tilkynningu fljótlega eftir að búið er að svara könnuninni. Um er að ræða gjafakort að verðmæti kr. 15.000.

Átta veglegir vinningar eru í boði þegar könnuninni er lokið. Tveir vinningar að upphæð  kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna.

Þín svör skipta máli – takk fyrir að taka þátt!