Tökum vel á móti Gallup

Þessa dagana er Gallup að framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga. Búið er að senda bréf á þá 3.000 félagsmenn sem valdir voru handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga.

Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Starfsmenn frá Gallup eru nú að hringja í þessa félagsmenn og bjóða þeim þátttöku. Bæði verður hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað.

Þátttakendur strax í happdrættispott!
10 þátttakendur lenda strax í happdrættispotti, vinningshafar fá tilkynningu um leið og búið er að svara könnuninni. Um er að ræða gjafabréf að verðmæti kr. 10.000.

Auk þess eru sex veglegir vinningar í boði þegar könnuninni er lokið. Peningaverðlaun að upphæð kr. 100.000 og kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna .

Upplýsingar ykkar skipta miklu máli!