Tökum vel á móti Capacent Callup

Ert þú búin/nn að svara?
Ert þú búin/nn að svara?

Þessa dagana er Capacent Gallup að framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags. Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga. Búið er að senda bréf á þá 3.000 félagsmenn sem valdir voru handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga.

Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Starfsmenn frá Capacent Gallup eru nú að hringja í þessa félagsmenn og bjóða þeim þátttöku. Bæði verður hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað.

Upplýsingar ykkar skipta miklu máli!