Tökum vel á móti Capacent

Undanfarin ár hefur Capacent framkvæmt könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLs starfsgreinafélags. Nú er slík könnun að fara í gang og er búið að senda bréf á 3.000 félagsmenn sem valdir voru handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga.

Á næstu dögum mun starfsmaður Capacent hringja í þessa félagsmenn og er það von okkar að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra. Það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður þannig að við hvetjum ykkur til að svara svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar.

Upplýsingar ykkar skipta miklu máli!


Könnunin er líka happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga.

Nýjung - Þátttakendur strax í happdrættispott!
Í ár lenda 20 þátttakendur strax í happdrættispotti. Hinir heppnu vinningshafar fá tilkynningu um það um leið og lokið hefur verið við að svara könnuninni, um er að ræða kr. 10.000 inneign á debetkorti.

Auk þess eru sex veglegir vinningar í boði þegar könnuninni er lokið. Peningaverðlaun að upphæð kr. 100.000 og kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna .