Tilkynningar um verkfallsbrot

Nú stendur yfir verkfallslota hjá félagsmönnum sem starf á almenna vinnumarkaðnum, þ.e. ekki hjá þeim sem starfa hjá ríki eða sveitarfélögum. Þessi lota mun standa til miðnættis í kvöld, 7. maí.

Ef félagsmenn Einingar-Iðju verða varir við verkfallsbrot eru þeir beðnir um að hafa samband við einhverja skrifstofu félagsins í síma 460 3600. Einnig er hægt að hringja í Björn formann í síma 894 0729 eða Önnu varaformann í síma 662 0176.