Til hamingju Rakel

Fyrr í morgun kom félagsmaður á skrifstofuna á Akureyri til að ná í vinning sem hún fékk með því að taka þátt í könnun á vegum félagsins. Þetta var Rakel Anfinnsdóttir Heinesen sem fékk 1. vinning að upphæð kr. 100.000. Undanfarin ár hafa 1.500 félagsmenn verið valdir handahófskennt úr félagaskránni og fengið boð um að taka þátt í launakönnun Einingar-Iðju.

„Þegar Gallup hringdi þá sagðist ég ekki hafa tíma til að taka þátt en var þá spurð hvort það mætti senda mér könnunina í tölvupósti og sagði ég já við því. Ég var fljót að svara og greinilegt að það borgaði sig að svara þessari könnun,“ sagði Rakel mjög sátt með vinninginn.