Til hamingju Hermann

Hermann Harðarson
Hermann Harðarson

Fyrr í morgun kom félagsmaður á skrifstofuna á Akureyri til að ná í vinning sem hann fékk með því að taka þátt í könnun á vegum félagsins. Þetta var Hermann Harðarson sem fékk 1. vinning að upphæð kr. 100.000.

Aðspurður sagðist hann ekki muna hvort hann hafi tekið þátt í slíkri könnun áður hjá félaginu, en undanfarin ár hafa 1.500 félagsmenn verið valdir handahófskennt úr félagaskránni og fengið boð um að taka þátt í launakönnun Einingar-Iðju. "Það borgar sig greinilega að taka þátt, miði er möguleiki," sagði Hermann glaðbeittur eftir að hann fékk vinninginn í hendur.