Til hamingju

Á afmælisdegi Akureyrar þann 29. ágúst sl. hélt bæjarstjórnin hátíðarfund í Hofi. Þar voru þau Jónu Bertu Jónsdóttur, sem flestir þekkja af störfum fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, og Hermanni Sigtryggssyni, æskulýðs- og íþróttafrömuði, veittar sérstakar heiðursviðurkenningar í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins. Jóna Berta er heiðursfélagi Einingar-Iðju og vill félagið óska henni og Hermanni til hamingju með viðurkenninguna.