Þrír fundir í dag með trúnaðarmönnum á almenna vinnumarkaðinum

Í dag heldur félagið þrjá fundi á svæðinu með trúnaðarmönnum félagsins sem starfa á almenna vinnumarkaðinum. Sá fyrsti verður kl. 12 á Siglufirði, næsti verður kl. 14 á Dalvík og sá þriðji á Akureyri kl. 20.

Björn Snbæbjörnsson, formaður félagsins, mun þarna fara yfir stöðuna í samningaviðræðum við SA, rafræna kosningu um verkfallsheimild sem hefst í næstu viku og sex opna fundi sem verða á félagssvæðinu í næstu viku. 

FJALLABYGGÐ
Á fundinn mæta trúnaðarmenn félagsins í Fjallabyggð. Fundurinn hefst kl. 12:00  og verður í sal félagsins á Siglufirði.

DALVÍK
Á fundinn mæta trúnaðarmenn félagsins á Dalvík og í Hrísey. Fundurinn hefst kl. 14:00 og verður í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju.

AKUREYRI
Á fundinn mæta trúnaðarmenn félagsins á Akureyri og nágrenni og á Grenivík. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri.