Þrír félagsfundir

Framkvæmdastjóri STAPA mætir á fundina
Framkvæmdastjóri STAPA mætir á fundina

Almennir félagsfundir verða í Fjallabyggð, Dalvík og á Akureyri í næstu viku. Mánudaginn 17. nóvember verða fundir í Fjallabyggð og á Dalvík. Fundurinn í Fjallabyggð hefst kl. 17:00 og fer fram í salnum á skrifstofu félagsins, Eyrargötu 24b á Siglufirði. Fundurinn á Dalvík hefst kl. 20:00 en hann verður í Mímisbrunni. Fimmtudaginn 20. nóvember verður fundur á Akureyri. Hann verður á Hótel KEA og hefst kl. 20:00.

Dagskrá:

  1. Staðan í samningamálum
  2. Kynnt hugmynd að nýju réttindakerfi STAPA lífeyrissjóðs
    • Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri STAPA, verður með kynningu á hugmyndum að nýju réttindakerfi sem var kynnt á síðasta ársfundi Stapa. Ekki er búið að taka ákvörðunum hvort farið verði í þessa breytingu og því mikilvægt er fyrir sjóðsfélaga að fá kynningu á nýju réttindakerfi og fá um leið tækifæri til að fá nánari útskýringar á hvað það þýðir.
  3. Önnur mál

Félagar fjölmennum