Þriggja daga þing ASÍ hefst á morgun

Þrjú hundruð fulltrúar frá 48 stéttarfélögum af öllu landinu koma saman á 43. þingi ASÍ sem hefst á morgun, þar af níu frá Einingu-Iðju. Þar verður stefna sambandsins til næstu tveggja ára mörkuð auk þess sem ný forysta verður kjörin á föstudag. Ljóst er að nýr forseti ASÍ og tveir varaforsetar verða kjörnir auk þess sem búast má við nokkrum breytingum á fulltrúum í miðstjórn ASÍ en miðstjórnin fer með æðsta vald í Alþýðusambandinu á milli þinga.

Tvö hafa tilkynnt framboð til forseta ASÍ, þau Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS og Sverrir Mar Albertsson framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Afls. Til varforseta hafa þrír tilkynnt framboð; Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Fimm málefni verða rædd sérstaklega í hópavinnu á þinginu. Þau eru:

  • Tekjuskipting og jöfnuður
  • Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs
  • Tækniþróun og skipulag vinnunnar
  • Heilbrigðisþjónusta og Velferðarkerfið
  • Húsnæðismál

Í maí og september hélt ASÍ 18 fundi á 11 stöðum á landinu til að undirbúa umræðuna fyrir þingið en alls tóku tæplega 600 manns úr grasrót verkalýðshreyfingarinnar þátt í þessum fundum. Unnið verður áfram með niðurstöðu þeirra funda á þinginu.

Nánar má fræðast um þing ASÍ á sérstökum þingvef ASÍ.

Streymt verður frá upphafi þingsins á miðvikudag á heimasíðu ASÍ.