Þing ASÍ-UNG

Ný stjórn ASÍ-UNG
Ný stjórn ASÍ-UNG

4. þing ASÍ-UNG var haldið í húsakynnum Rafiðnaðarskólans 23. september sl. Félagið sendi tvo fulltrúa á þingið, þau Hafdísi E. Ásbjarnadóttur, sem starfar á skrifstofu félagsins á Akureyri, og Börk Þór Björgvinsson, sem starfar á Dominos á Akureyri. Á þinginu sagði ungt fólk frá reynslu sinni á vinnumarkaði og baráttunni fyrir réttindum sínum. Þá voru flutt erindi um stöðu ungs fólk á húsnæðismarkaði og vinnumarkaðinn og fjölskylduna. Eftir hádegi fór fram hópavinna þar sem leitast var við að svara spurningunni „Hvernig sjáum við framtíð ungs fólks í hreyfingunni?“. Skipuð var ritnefnd sem mun hafa það hlutverk að fullmóta ályktanir ASÍ-UNG sem lagðar verða fyrir þing ASÍ sem fer fram í október næstkomandi. Ánægjulegt var að sjá að margir af þeim fulltrúum sem mættu á ungliðafund SGS, sem haldinn var í Grindavík í júní sl., voru einnig mættir á þingið sem fulltrúar síns félags.

Þingið kaus níu manna stjórn ASÍ-UNG sem síðan skiptir með sér verkum. Hafdís E. Ásbjarnardóttir frá Einingu-Iðju var kosin ný í stjórn, en sjórnin er skipuð ungu fólki á aldrinum 18-35 ára sem kemur úr stéttarfélögum víðsvegar að af landinu.

Stjórnina skipa:

Aðalbjörn Jóhannsson – Framsýn, stéttarfélag
Agnar Ólason – VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna
Alma Pálmdóttir – Efling – stéttarfélag
Bóas Ingi Jónasson – Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri
Eiríkur Theódórsson – Stéttarfélag Vesturlands
Eva Demireva – VR
Hafdís E. Ásbjarnardóttir – Eining-Iðja
Helgi S. Jóhannsson – Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
Svanborg Hilmarsdóttir – Félag íslenskra rafvirkja

Varastjórn:
Atli Hilmar Skúlason – VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna
Fjóla Helgadóttir – VR
Guðbjörg Gunnarsdóttir – Stéttarfélag Vesturlands
Kristinn Örn Arnarson – Efling – stéttarfélag
Valgeir Eyþórsson – AFL Starfsgreinafélag