Í október leggur Starfsgreinasambandið sérstaka áherslu á að vekja athygli á verktakavinnu, en undanfarið hefur SGS lagt áherslu á að vekja athygli á ákveðnum málum í hverjum mánuði. Meðal annara málefna sem eru og hafa verið á dagskrá má nefna orlofsrétt, erlent starfsfólk, fyrstu skrefin á vinnumarkaði, veikindarétt, ungt fólk og verkalýðshreyfinguna, afleiðingar svartrar vinnu, lífeyrisréttindi og margt fleira.