Þekkir þú rétt þinn?

Um þessar mundir stendur Starfsgreinasamband Íslands fyrir átaki undir yfirskriftinni „Þekkir þú þinn rétt?“. Tilgangurinn með átakinu er að vekja unga einstaklinga, sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum í sumar, til umhugsunar um réttindi sín á vinnumarkaði, en því miður er raunin oft sú að unga fólkið er illa að sér um réttindi sín og skyldur.

Stéttarfélög um allt land hafa orðið vör við að ungt fólk sé látið vinna svokallaða „prufudaga“ án launa, þá er jafnaðarkaup ennþá töluvert algengt og sömuleiðis gerviverktaka. Nauðsynlegt er að fólk þekki rétt sinn og skyldur varðandi vinnutíma og að ekki er hægt að kalla til fólk á vaktir og senda það heim fyrirvaralaust án launa eins og vill brenna við.

Þetta eru nokkur dæmi um það sem Starfsgreinasambandið telur tilefni til að minna ungt fólk á að varast þegar það stígur sín fyrstu skref á vinnumarkaðnum.

Á næstunni mun Eining-Iðja senda frá sér nokkrar auglýsingar þar sem fram koma nokkrar grunnupplýsingar um það sem ungt fólk þarf að vita þegar það tekur í fyrsta sinn þátt á vinnumarkaðnum.

Fésbókarsíðan „Vinnan mín“