Aðalfundir deilda kl. 19:30 í kvöld

Fundirnir verða á Hótel KEA
Fundirnir verða á Hótel KEA

Aðalfundir deilda félagsins fara fram í kvöld kl. 19:30 á Hótel KEA á Akureyri. Félagið minnir þá á sem ætla að fá far með rútunni að láta vita fyrir kl. 12 í dag í síma 460 3620. Rútan fer frá:

    • Siglufirði kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins.
    • Ólafsfirði kl. 18:15, frá Tjarnarborg.
    • Dalvík kl. 18:30, frá skrifstofu félagsins. 
  • Sameinast verður í bíla frá: 
    • Hrísey, hringið í svæðisfulltrúa í síma 692 4910 
    • Grenivík, hringið í svæðisfulltrúa í í síma 844 5729

Í ár þarf að kjósa til tveggja ára um varaformenn deildanna og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig.

 

  • Einnig þarf að kjósa til eins árs:
    • Tvo meðstjórnendur í Iðnaðar- og tækjadeild
    • Ritara og einn meðstjórnanda í Matvæla- og þjónustudeild 
    • Einn meðstjórnanda í Opinberu deildinni
  • Þórgnýr Dýrfjörð mun flytja erindi á sameiginlega fundinum. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund.

    Nöfn þriggja fundargesta verða dregin út og fá þeir hepppnu helgardvöl á Illugastöðum í vetur.

    Kaffiveitingar í boði