Alþýðusambandið kynnir hinn stórskemmtilega spurningaleik alþýðunnar, Það er nóg til!
Nú yfir hásumarið, þegar landsmenn flestir eru í fríi, eða á leið í frí er oft mikið um skemmtilegar samverustundir. Alþýðusambandið tók saman nokkrar skemmtilegar spurningar og útbjó spurningaleik sem gaman gæti verið að spreyta sig á í fríinu (eða bara hvenær sem er). Hér er á ferðinni spurningabanki sem getur nýst í geysispennandi spurningakeppnir við fjölskyldu og vini. Svo er líka bara hægt að keppa við sjálfan sig og fylgjast með stigunum detta í hús.