Félagsmálaskólinn vill vekja athygli á námskeiði fyrir einstaklinga í atvinnuleit og aðra þá sem vilja læra og fá aðstoð við að setja upp ferilskrá, kynningarbréf og atvinnuviðtalið. Í framhaldi fá þátttakendur einstaklingsviðtöl með leiðbeinandanum.
Námskeiðið er opið öllum og verður kennt í fjarnámi. Um er að ræða tvö námskeið, annað verður kennt á íslensku og hitt á ensku.