Takk strákar

Þorsteinn, Ingvar og Sigurður
Þorsteinn, Ingvar og Sigurður

Nýlega var haldinn 1. fundur í stjórn Iðnaðar- og tækjadeildar á nýju starfsári. Sigurður Sveinn Ingólfsson sem hætti stjórnarsetu á síðasta aðalfundi eftir langa setu í stjórninni var boðaður á fundinn þar sem Ingvar , formaður deildarinnar, þakkaði honum fyrir góð störf í þágu deildarinnar og færði honum blómvönd af því tilefni.

Ingvar þakkaði einnig Þorsteini E. Arnórssyni, starfsmanni félagsins og fyrrum starfsmanni deildarinnar, fyrir sitt framlag til deildarinnar og færði honum blómvönd þar sem hann var að sitja síðasta stjórnarfund sem starfsmaður deildarinnar.