Takk Ómar

Ómar ásamt Sigríði formanni deildarinnar
Ómar ásamt Sigríði formanni deildarinnar

Í lok apríl var haldinn 1. fundur í stjórn opinberudeildarinnar á nýju starfsári. Ómar Ólafsson sem hætti stjórnarsetu á síðasta aðalfundi eftir langa setu í stjórninni var boðaður á fundinn þar sem Sigríður, formaður deildarinnar, þakkaði honum fyrir góð störf í þágu deildarinnar og færði honum blómvönd af því tilefni.