Takk fyrir okkur

Fyrr í morgun komu góðir gestir í heimsókn á skrifstofu félagsins á Akureyri. Á ferð voru tveir nemendur í níunda bekk Síðuskóla sem voru að lesa upp úr nýjum jólabókum fyrir starfsfólk fyrirtækja.

Nemendurnir eru á ferðinni í miðbæ Akureyrar fram og lesa upp í nokkrum fyrirtækjum. Að sögn kennara þeirra er alltaf gott þegar skólar og fyrirtæki geta unnið saman að því að gera góða nemendur betri. „Þessi upplestur er hugsaður sem uppbrot á hefðbundinni kennslu með því að leyfa nemendum að fara um og æfa sig í framsögn, framkomu og lestri.“

Að lestri loknum fær kennarinn svo upplýsingar um frammistöðuna svo hægt verði að meta þetta inn í skólann.