Takk fyrir okkur

Lesturinn tók um 15 mínútur
Lesturinn tók um 15 mínútur

Í morgun komu góðir gestir í heimsókn á skrifstofu félagsins á Akureyri. Á ferð voru nemendur í níundabekk Síðuskóla sem voru að lesa upp úr nýjum jólabókum fyrir starfsfólk fyrirtækja.

Nemendur í bekknum fóru um í fimm manna hópum og lásu upp í nokkrum fyrirtækjum. Að sögn umsjónarkennara þeirra er þessi upplestur góð leið fyrir krakkana til að komast út úr skólanum og æfa framkomu og framsögn. “Eins er þetta gott til að auka samstarf skóla og fyrirtækja í bænum í gegnum eitthvað sem allir eða flestir hafa gaman af.“