Svignaskarð - laust vegna forfalla

Vegna forfalla er laust í orlofshúsi félagsins í Svignaskarði í Borgarfirði næstu tvær helgar. (29/9 - 1/10 og 6/10 - 8/10) Nú gildir fyrstur pantar, fyrstur fær.

Vorið 2012 var tekið í notkun nýtt og glæsilegt hús í Svignaskarði í stað eldra húss sem var orðið barn síns tíma. Nýja húsið er um 75 fermetrar að stærð með öllum helstu þægindum og heitum potti. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, setu- og borðstofa með eldhúskrók og baðherbergi m/sturtu. Svefnpláss er fyrir átta 8 manns.

Nánar má lesa um staðinn og sjá myndir hér