Síðasti skiladagur umsókna vegna orlofshúsa, orlofsíbúða og "Viku að eigin vali" er á morgun, laugardagurinn 1. apríl.
Í ár þarf að sækja um orlofshús og orlofsstyrki á rafrænan hátt á félagavefnum og því fylgdi ekki umsóknareyðublað með orlofsblaðinu eins og undanfarin ár. Hér má finna myndband þar sem sýnt er hvernig sótt er um.
Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða veflykli. Ef þú hefur ekki virkjað rafræn skilríki eða fengið veflykil frá félaginu þá þarftu að sækja um aðgang að vefnum og fá sendan veflykil heim. Þetta gerir þú á félagavefnum.
Ef þú lendir í vandræðum við að senda inn umsókn getur þú fengið aðstoð á skrifstofum félagsins.