Sumarstarfsmenn

Aðalbjörg og Soffía
Aðalbjörg og Soffía

Eins og undanfarin sumur er búið að ráða inn afleysingafólk á skrifstofur félagsins í sumar. Á Akureyri munu eins og áður verða tvær sem skipta á milli sín deginum frá 1. júní til 31. ágúst. Aðalbjörg G. Hauksdóttir verður á vaktinni á skrifstofunni milli kl 8 og 12 og Soffía Rut Guðmundsdóttir milli kl. 12 og 16. Í Fjallabyggð mun Snjólaug Ásta Sigfinnsdóttir leysa Margréti af á meðan hún fer í frí.