Sumarblaðið verður borið út í vikunni

Sumarblað félagsins verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu næsta miðvikudag. Í blaðinu er m.a. fjallað um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins og eins er t.d. fjallað um ráðstefnu gegn staðalmyndum og kynferðislegri áreitni innan ferðaþjónustunnar, endurskoðað starfsmat sveitarfélaganna, dagsferðina, aðalfund félagsins, 1. maí og ársfund Stapa. 

Blaðið er komið á netið og má lesa það hér, bæði á pdf eða Flash formi.