Sumarblaðið er komið á netið

Sumarblað félagsins er komið á netið og má lesa það bæði á pdf eða Flash formi.

Blaðið er farið í prentun en það verður borið út miðvikudaginn 30. júní nk. með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 28 síður að stærð, er m.a. fjallað um greiðslur til félagsmanna á síðasta ári úr sjóðum félagsins, aðalfund félagsins, ársfund Stapa, VIRK starfsendurhæfingarsjóð og margt fleira. Í blaðinu má einnig finna viðtal við Tryggva Jóhannsson, formann Matvæla- og þjónustudeildar Einingar-Iðju en hann gegnir nú stöðu formanns stjórnar Stapa.