Styrkir til menntunar og náms

Nú þegar haustið er á næsta leiti er tímabært að minna félagsmenn hvað félagið hefur upp á að bjóða varðandi styrki til menntunar og náms. Athugið að þessir styrkir eru fyrir Einingar-Iðju félaga sem eru á vinnumarkaði og hafa unnið fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 en greitt a.m.k. 2 mánuði af síðustu 12 mánuðum til félagsins á þeim tíma. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofum félagsins, í síma 460 3600. Upplýsingar um úthlutunarreglur og skilyrði er meðal annars að finna á vefum Sveitamenntar, Landsmenntar og Ríkismenntar.

Eining-Iðja á aðild að fræðslusjóðunum Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt, en sjóðirnir veita annars vegar einstaklingsstyrki vegna einstakra námskeiða og hins vegar styrki til stærri verkefna þar sem um væri að ræða samstarf fyrirtækja og verkalýðsfélaga í starfsmenntun, það er skipulagning á heildarlausnum starfstengdra námskeiða á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins.

Sá háttur er hafður á einstaklingsstyrkjunum að hver félagsmaður getur sótt um styrk til félagsins, sem metur umsóknina og afgreiðir styrkinn eftir starfsreglum sjóðanna. Eining-Iðja sækir síðan um endurgreiðslu til þeirra, en félagið á rétt á að sækja um að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og er fólk hvatt til að hafa samband við félagið og kanna rétt sinn.

  • Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni.
  • Ríkismennt er þróunar-og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS).
  • Sveitamennt er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands.
  • Kynningarmyndband um fræðslusjóðina