Styrkir - punktar frá aðalfundi

4.533 félagsmenn fengu einhverskonar styrk eða endurgreiðslu kostnaðar á árinu. 851 fengu starfsmenntastyrki, 2.235 fengu styrki úr sjúkrasjóði, 1.245 fengu orlofsstyrk eða orlofshús og 202 fóru í orlofsferðir á vegum félagsins eða í leikhús. Þetta eru um 62% félagsmanna, miðað við um 58% á árinu þar á undan.