Miðstjórn ASÍ lýs­ir yfir stuðningi við SGS

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir stuðningi sambandsins við yfirstandandi verkfallsaðgerðir aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands í kjaradeilu þeirra við atvinnurekendur vegna endurnýjunar aðalkjarasamninga. 

Miðstjórn hvetur félagsmenn allra aðildarsamtaka sinna til að virða aðgerðir félaganna og stuðla að því að verkfallsbrot verði ekki framin.