Streymt frá fundi um kjarajafnrétti og jafnréttislög

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars nk. bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Jafnréttisráð, Jafnréttisstofa, Kennarasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands til hádegisverðarfundar í dag, 5. mars, millii kl. 12 og 13. Yfirskrift fundarins er Baráttan heldur áfram! Kjarajafnrétti og ný jafnréttislög. Streymt verður frá fundinum, áhugasamir geta fylgst með hér

Dagskrá:

  • „Kerfislæg mismunun kynjanna – geta jafnréttislög rétt við kynbundið gildismat samfélagsins?“ Brynhildur Flóvenz, dósent við lagadeild HÍ.
  • „Skylda til launajafnréttis“ Dagný Ósk Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB.
  • „Kyn, völd, og verkó“ Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Fundarstjóri er Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.