Stjórnin fundaði á Illugastöðum

Fundur var haldinn í aðalstjórn Einingar-Iðju í gær og fór hann fram á Illugastöðum í Fnjóskadal þar sem félagið á 14 orlofshús. Fjölmörg mál voru á dagskrá, m.a. Lífskjarasamningurinn, 44. þing ASÍ, næsti trúnaðarráðsfundur, fundir með trúnaðarmönnum og fundargerðir deilda. Fyrsta mál á dagskrá var samt að fara í skoðunarferð um svæðið og kíkja m.a. á hvernig til tókst með framkvæmdir á þeim sex húsum sem tekin hafa verið í gegn að undanförnu.