Stjórnarkjör

Á fundi trúnaðarráðs félagsins sem fram fór á Akureyri fyrr í kvöld var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar að lista stjórnar og trúnaðarráðs Einingar-Iðju fyrir starfsárið 2017-2018. Einnig var samþykkt eftirfarandi tillaga um skilafrest lista:

Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um mann í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2017-2018 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.

Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum 100 manns í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara til eins árs. Einnig er hægt að bjóða fram einungis gegn formanni og eða ritara til tveggja ára.

Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna.

Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi föstudagsins 24. febrúar 2017.

Akureyri 15. febrúar 2017

Stjórn Einingar-Iðju