Á fundi trúnaðarráðs félagsins í gær var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar að lista stjórnar og trúnaðarráðs Einingar-Iðju fyrir starfsárið 2013-2014. Einnig var samþykkt eftirfarandi tillaga um skilafrest lista:
Stjórnarkjör
Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um menn í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2013-2014 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu.
Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum 100 manns í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara til eins árs. Einnig er hægt að bjóða fram einungis gegn formanni og/eða ritara sem kosnir eru til tveggja ára.
Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna.
Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 1. mars 2013.
Akureyri 20. febrúar 2013
Stjórn Einingar-Iðju