Stefna sem samþykkt var á þingi ASÍ

Á nýafstöðnu þingi ASÍ var mörkuð stefna í þeim fimm málaflokkum sem voru sérstaklega til umfjöllunar á þinginu og í aðdraganada þess. Í maí og september voru farnar tvær hringferðir um landið og haldnir 18 fundir á 11 stöðum þar sem vel á sjötta hundrað manns í grasrót verkalýðshreyfingarinnar fjölluðu um málaflokkana fimm. Umfjöllun um þá var svo framhaldið á 43. þingi ASÍ þar sem 300 þingfulltrúar komu að vinnunni. Málaflokkarnir sem um ræðir eru eftirfarandi:

  • Tekjuskipting og jöfnuður
  • Húsnæðismál
  • Heilbrigðismál og velferð
  • Tækniþróun og skipulag vinnunnar
  • Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs

Hér má sjá stefnuskjölin eins og þau voru samþykkt á 43. þingi ASÍ.