Starfsmenn sveitarfélaga eiga að fá innágreiðsluna í dag

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndir SGS og Eflingar – stéttarfélags undirrituðu samkomulag um endurskoðun viðræðuáætlunar aðila í byrjun september. Þar var m.a. samið um að í dag, 1. október 2019, verði hverjum starfsmanni greidd innágreiðsla á væntanlegan kjarasamning að upphæð 125.000 kr. miðað við fullt starf. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall á tímabilinu frá og með 1. apríl 2019 til og með 30. september 2019.  Starfsmenn í fæðingarorlofi og tímavinnufólk fær innágreiðsluna.

Það er sameiginlegur skilningur aðila að ofangreind fjárhæð sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga aðila og verði metinn sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.