Starfsmenn SGS heimsækja Norðurland

Í lok vikunnar sækja tveir nýráðnir starfsmenn Starfsgreinasambandsins Norðurland heim, þau Drífa Snædal framkvæmdastjóri og Árni Steinar Stefánsson sérfræðingur. Á fimmtudag verður Eining-Iðja heimsótt og um kvöldið verða Drífa og Árni gestir á stjórnar- og trúnaðarmannaráðsfundi Framsýnar á Húsavík. Föstudaginn 28. september heimsækja þau svo Verkalýðsfélags Þórshafnar. Fundirnir eru liður í því að kynna nýtt starfsfólk til leiks og eru áætlaðar fleiri heimsóknir til aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins á næstu vikum.