Á undanförnum árum hefur félagið haldið nokkur námskeið fyrir félagsmenn á aldrinum 65 til 70 ára með það að markmiði að fræða viðkomandi um rétt sinn og að leiðbeina við starfslok. Nú hefur verið ákveðið að halda tvö slík námskeið, á Dalvík og í Fjallabyggð, í samvinnu við SÍMEY. Hægt er að skrá sig neðst í fréttinni. Síðasti skráningardagur er 18. nóvember nk.
Námskeiðin eru eingöngu fyrir félagsmenn í Einingu-Iðju og er þeim að kostnaðarlausu.
Námskeiðið í Fjallabyggð verður í sal félagsins í Fjallabyggð dagana 22. og 29. nóvember nk. en námskeiðið á Dalvík verður í námsveri SÍMEY dagana 23. og 30. nóvember nk. Námskeiðin standa yfir milli kl. 16:30 og 20:00 þessa daga.
Fjallabyggð - Fyrri hluti - Mánudagur 22. nóvember
- 16:30-16:40 Setning námskeiðs.
- 16:40-17:10 Eining-Iðja, félagið okkar við starfslok. Anna Júlíusdóttir, varaformaður Einingar-Iðju.
- 17:10-18:10 Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna. Kristján Már Magnússon sálfræðingur.
- 18:10-18:25 Hressing.
- 18:25-19:25 Stapi – lífeyrissjóðsmál. Jóna Finndís Jónsdóttir og Kristín Hilmarsdóttir frá Stapa lífeyrissjóði.
- 19:25-20:15 Heilsueflandi fyrirlestur. Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttafræðingur.
Fjallabyggð - Seinni hluti - Mánudagur 29. nóvember
- 16:30-17.15 Almannatryggingar og lífeyrismál. Fulltrúi frá sýslumanni.
- 17:15-17:45 Kynning frá félögum eldri borgara í Fjallabyggð.
- 17:45-18:00 Hressing.
- 18:00-18:30 Sveitarfélagið Fjallabyggð, kynning á félagsstarfi eldri borgara.
- 18:30-19:00 SÍMEY hver erum við - hvað gerum við? Fulltrúi frá SÍMEY.
- 19:00-19:15 Samantekt og lok.
Dalvík - Fyrri hluti - Þriðjudagur 23. nóvember
- 16:30-16:40 Setning námskeiðs.
- 16:40-17:40 Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna. Kristján Már Magnússon sálfræðingur.
- 17:40-18:00 Hressing.
- 18:00-19:00 Stapi – lífeyrissjóðsmál. Jóna Finndís Jónsdóttir og Kristín Hilmarsdóttir frá Stapa lífeyrissjóði.
- 19:00-19:50 Heilsueflandi fyrirlestur. Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttafræðingur.
Dalvík - Seinni hluti - Þriðjudagur 30. nóvember
- 16:30-17:00 Eining-Iðja, félagið okkar við starfslok. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.
- 17:00-17:45 Almannatryggingar og lífeyrismál. Fulltrúi frá sýslumanni.
- 17:45-18:00 Hressing.
- 18:00-18:30 Kynning á félagi eldri borgara á Dalvík.
- 18:30-19:00 Dalvíkurbyggð, kynning á félagsstarfi eldri borgara.
- 19:00-19:30 SÍMEY hver erum við - hvað gerum við? Fulltrúi frá SÍMEY.
- 19:30-19:45 Samantekt og lok.
Athugið að dagskráin er sett fram með fyrirvara um breytingar.
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Skráning |
Fjallabyggð |
22. og 29. nóv |
Mánudagar |
16.30-20.00 |
Salur Einingar Iðju á Siglufirði |
SKRÁNING |
Dalvík |
23. og 30. nóv |
Þriðjudagar |
16.30-20.00 |
Námsver SÍMEY í Víkurröst |
SKRÁNING |