Starfmenn á námskeiði

Í gær voru starfsmenn félagsins á námskeiði sem bar nafnið Þjónusta sem virkar vel. Leiðbeinandi var Steinunn I. Stefánsdóttir frá fyrirtækni Starfsleikni ehf. en hún fjallaði um margvíslegar leiðir til að styrkja starfmenn til að gera góða þjónustu enn betri.

Einu sinni á ári fara starfsmenn Einingar-Iðju á námskeið til að styrkja þá í starfi, ekki síst í þeim tilgangi til að geta veitt félagsmönnum enn betri þjónustu.