Starf lögfræðings laust til umsóknar

Eining-Iðja leitar að öflugum lögfræðingi til starfa hjá félaginu. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf. Starfið er á Akureyri. 

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars nk. 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent

Starfssvið

  • Móttaka félagsmanna

  • Almenn upplýsingagjöf

  • Verkefnastjórnun

  • Lögfræðileg málefni, td. tengd kjarasamningum

  • Útreikningar

  • Eftirlit með vinnustaðaskírteinum

  • Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila

  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lögfræðimenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla og þekking á vinnumarkaði og nærsamfélaginu

  • Þekking á lögfræðilegum málefnum eins og vinnurétti kostur

  • Þekking á kjarasamningsmálum kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund

  • Geta til að skilja og setja sig inn í mismunandi aðstæður einstaklinga

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð tungumálakunnátta, í íslensku og ensku og geta til að koma frá 

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.