Eins og sagt var frá á síðunni í desember tóku gildi ákvæði um áramótin, sem samþykkt voru á síðasta ársfundi Stapa, um nýtt réttindakerfi. Meginn tilgangur þessarar breytingar er að tryggja betra jafnvægi milli eigna sjóðsins á hverjum tíma og veðmætis þeirra lífyeirréttinda sem sjóðurinn veitir.
Á heimasíðu Stapa kemur fram að gert er ráð fyrir að þessi kerfisbreyting hafi í för með sér óverulegar breytingar á áunnum réttindum sjóðfélaga, en nánar verður upplýst um þetta þegar uppgjör liggur fyrir og yfirfærlsan hefur farið fram. Ekki verða breytingar á lífeyrisgreiðslum til lífeyrisþega vegna þessa. Stapi hvetur sjóðfélaga einnig til að hafa samband við sjóðinn og leita frekari upplýsinga um þessa breytingu, bæði um það sem þeim finnst óljóst og það sem þeim finnst að frekari skýringar vanti. Allar umsóknir um lífeyri, sem mótteknar voru fyrir sl. áramót verða afgreiddar miðað við eldra kerfi, en allar umsóknir sem mótteknar eru eftir áramótin verða afgreiddar mv. nýtt kerfi.
Hér má sjá nokkrar spurningar um nýja kerfið og svör við þeim