Spurt og svarað um SALEK samkomulagið

SALEK-samkomulagið sem undirritað var í lok október milli stórs hluta vinnumarkaðarins hefur verið töluvert til umfjöllunar síðustu daga. á heimasíðu ASÍ kemur fram að nokkuð hefur verið um að misskilnings hafi gætt í þeirri umræðu.

Til að skýra myndina fyrir leikmönnum og hjálpa þeim að mynda sér skoðun á málinu hefur ASÍ birt nokkrar algengar spurningar sem komið hafa upp, sem svarað er í stuttu en skýru máli. Á síðunni kemur einnig fram að ef lesendur hafi fleiri spurningar þá eru þeir hvattir til að senda þær á asi@asi.is og verðum þeim svarað eins fljótt og kostur er.

Spurningar og svör um SALEK má sjá hér.