Spennandi ferðir í boði

Að venju mun félagið bjóða upp á þrjár spennandi ferðir sumarið 2013. Farið verður til Þýskalands 8. til 16. ágúst, ef næg þátttaka fæst, innanlandsferðin verður farin dagana 18. til 21. júní og dagsferðin fyrir eldri félagsmenn verður fimmtudaginn 13. júní.

Allar nánari upplýsingar um ferðatilhögun og skráning í ferðirnar verður á skrifstofu félagsins á Akureyri og í síma 460 3600 frá fimmtudeginum 3. janúar 2013.

Hér má lesa nánar um ferðirnar sem eru í boði sumarið 2013.