Á vef SGS segir að samkvæmt lögum og kjarasamningum eiga fjarvinnustarfsmenn að njóta sömu réttinda og aðrir sambærilegir starfsmenn í starfstöð atvinnurekanda. Sömu skilyrði gilda þegar kemur að aðbúnaði, hollustuháttum og slysum sem verða við vinnu fjarvinnustarfsmanna.
Atvinnurekandi ber ábyrgð á heilbrigði og öryggi fjarvinnustarfsmanns vegna vinnunnar í samræmi við löggjöf og kjarasamninga. Slys sem verður á vinnutíma í fjarvinnu og á ekki að rekja til sakar atvinnurekanda þarf ekki að tengjast framkvæmd vinnunnar eða vera af völdum hennar. Þegar um er að ræða slík slys þá er réttur viðkomandi í megin atriðum sá sami um tilgreint er í 4-6. gr. laga nr. 19/1979. Slysarétturinn er því virkur vegna starfsmanna í fjarvinnu.
Heimildir sóttar af vinnuréttarvef ASÍ.