Slæm umgengni

Að gefnu tilefni þá þurfum við því miður að biðja félagsmenn um að ganga vel frá íbúðum og orlofshúsum eftir notkun. Því miður er staðan sú að kvörtunum vegna umgengi og lélegra þrifa hefur farið fjölgandi að undanförnu. Félagar! Höfum í huga að orlofshúsin eru sameign okkar allra og því er nauðsynlegt að við sameinumst um að ganga um þau með því hugarfari. 

Fyrirtækið Sólar ehf. hefur umsjón með íbúðum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Leigjandi þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en auðvitað þarf að skila henni fullfrágenginni og snyrtilegri. Leigutakar þurfa sjálfir að þrífa íbúðina á Egilsstöðum og orlofshúsin áður en þeim er skilað. Best er að skilja við hús og íbúðir eins og við viljum koma að þeim. Verði vanhöld á þrifum, að mati umsjónarmanns á viðkomandi svæði, má búast við að leigutaki þurfi að borga þrifagjald.