Skrifað var undir um helgina

Um síðustu helgi var gengið frá nýjum kjarasamningum við fyrirtæki á svæðinu og eru nokkur fyrirtæki að hugsa sinn gang. Að undanförnu hafa fjölmörg fyrirtæki haft samband við Einingu-Iðju með áhuga á að gera nýjan kjarasamning við félagið eða þá til að kynna sér málin. Í þeim samningum sem búið er að skrifa undir var gengið að ýtrustu kröfugerð Starfsgreinasambandsins.

Vert er að nefna að ekkert fyrirtækjanna er innan Samtaka atvinnulífsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, hefur sagt að hann telji samninga sem þessa marklausa þar sem aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hafi framselt samtökunum samningsumboð sitt.