Skrifað undir samning við TDK

Fyrr í vikunni var gengið frá samningi við TDK Foil Iceland ehf., vegna félagsmanna sem þar starfa í vaktavinnu, eftir samningaviðræður undanfarna mánuði.

Samningurinn verður kynntur starfsmönnum á rafrænan hátt á tveimur fundum í dag, kl. 13 og kl. 17. Eftir það hefst rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn, sem Advania sér um, og mun henni ljúka kl. 13 miðvikudaginn 23. desember nk.