Skrifað undir samning við Ambassador

Björn og Magnús að lokinni undirskrift
Björn og Magnús að lokinni undirskrift

Fyrr í dag var skrifað undir samkomulag við hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassador ehf. á Akureyri vegna launamála starfsmanna fyrirtækisins sumarið 2016. Samkomulagið nær til almennra starfsmanna við afgreiðslu í miðasölu, háseta, leiðsögumanna og vaktstjóra. 

Ambassador býður upp á hvalaskoðunarferðir sem og aðrar sérferðir. Skip þeirra eru sérútbúin, en farið er frá Torfunesbryggju við miðbæinn í ferðir sem taka þrjá til fjóra tíma.